21september

Hetjuskapur og annađ bull!

Það er án efa hetjuleg frammistaða hjá mér í þessum blogg-málum...

Fór til hné-doktors á miðvikudaginn útaf...hnénu á mér...hahaha! En það er eitthvað að liðþófunum mínum og hann ætlar að skera mig upp 8 nóvember og tékka hvað hann getur gert fyrir mig!
Fór og talaði í leiðinni við svæfingarlækni sem að datt í hug að spyrja mig hvort að ég vildi fylgjast með aðgerðinni vakandi eða hvort að ég væri algör kjúkklingur...ég horfði frekar hneigsluð á hann og sagði kurteisislega að ég vildi vera "helt væk"....eða algörlega útúr kortinu á íslenskunni...ekki áhuga á einhverjum aðgerða-hetjuskap sem að er ekki til!
En annars er þetta voða lítil og meinlaus aðgerð...doksinn sagði að ef allt gengi upp þá ætti ég að geta farið að hjóla aftur eftir viku...

Annars er bara skóli og aftur skóli....Hjalti er aftur farinn í skóla....í 1.bekk í konditoranum...voða gaman hjá okkur...

Litli bró hann Egill Andri átti ammli 16 og varð 10 ára....til hamingju trítill!

Það er gjörsamlega ekkert að frétta af okkur....líður eins og í gamla daga þegar að maður átti að skrifa ritgerð í skólanum sem átti að vera ákv. löng en seinustu 100 orðin voru virkilegt reipitog...djæses...
Gæti sagt ykkur frá því þegar að ég reyndi að downloada nýju ritvinnsluforriti og það virkaði ekki....eða að það að ég fái að vita um 3-4 vikur hvort að ég fái SU (danski skóla styrkurinn) eða ekki...eða að við erum ekki ennþá byrjuð að mála stofuna af því að við vitum ekki hvaða liti við eigum að mála í...en já....reyni kanski bara að skrifa aftur einhverntíman seinna...frekar fyrr en seinna...

Bið að heilsa bara...
"Hetju"-aggan...(*hóst*)
21. september 2007 klukkan 15:33
Agga Ţöll
6 athugasemdir
05september

Skóli, skóli og igen skóli!

Þá er skólinn byrjaður á fullu sem að þýðir víst það að maður þarf að fara á læra á fullu....soldið erfitt svona strax eftir sumarfríið. Furðulegt hvernig maður er...maður getur ekki beðið eftir sumarfríinu á vorin en samt er maður farinn að hlakka svo til að byrja aftur í skólanum, lesa og skrifa verkefni....eitthvað sem að maður hristir hausinn yfir seinna á önninni...

Er búin að vera að lesa og aftur lesa í dag og glósurnar mínar eru illskiljanlegar fyrir aðra en mig...þær eru samblanda af íslensku, dönsku og ensku og mörgum litum og strikum sem að gegna hver sínu hlutverki...

Sófus er fluttur að heiman og við erum búin að vera að brainstorma hvað við getum gert við stofuna í höllinni okkar, fyrst að við fáum að vera hérna lengur...eftir ferð í IKEA í gær erum við orðin nokkuð plönuð upp fyrir haus held ég bara...og ég fékk að kaupa stórt blóm sem að ég get dundað mér við að drepa í vetur og lífga svo hægt við og drepið svo aftur osv. (hef merkilega góða hæfileika á þessu sviði...ekki að segja að hann sé "mannúðlegur"...eða "plöntúðlegur Óákveðinn en þetta skeður bara alltaf...)

Jæja...skemmtilegar sálfræði kenningar bíða spenntar eftir að verða lesnar....og ég auðvitað jafn spennt....

Farvel
Teori-aggan
05. september 2007 klukkan 14:41
Agga Ţöll
5 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur