29júní
Hitt...ađalega hitt....!
Aleveg magnað hreint...ég fæ á hverjum degi póst frá Núinu! og ég get unnið alls komar drazl...afslátt af ljósatímum og gelnöglum...10 daga fríkort í Hreyfingu osfv. Ég tek ALLTAF þátt í þessu...á hverjum degi og svo verð ég brjáuð ef að ég fæ ekkert í langan tíma....nema það ég get ekkert notað af þessu af því að þetta er allt á Íslandi! Er að bíða eftir að fá útlandaferðina sem að ég ætla að fá...sem er frá Íslandi til Parísar eða Prag....ætti alveg að slepp þessu rugli!Akkurat núna er ég heima að baka súkkulaði köku fyrir kallinn minn. Það er seinasti dagurinn hans í Frederiksberg Chokolade og hann verður víst skotinn í löppina ef að hann kemur ekki með eitthvað gott að narta! Hann byrjar svo hjá Grigo (grigo.dk) á mánudaginn en þarf aðeins að bíða með að fara á konditor samning af því að hann er á samning í Súkkulaðibúðinni til 15. ágúst.
Gústi sem að bjó hjá okkur á meðan hann var með Hjalta í skóla, kom og gisti 2 nætur um daginn....hann vildi endilega bjóða okkur í Tivolí sem og hann gerði.
Við hlupum þarna á milli tækja og voða gaman....svo förum við að fá okkur að borða...og svo ætluðum við að taka einn tækja hring áður en við færum út. Fórum í eitthvað ógeðslegt tæki...svona snúa og kollhnís tæki....og ég kom út og gubbaði og gubbaði öllum nýinnlögðum matnum...frábært! Hefur aldrei komið fyrir áður...hef alltaf þolað alveg óþolandi mikið....maður er að verða gamall.....

Sindri lilli bró er að koma út til mín í byrjun ágúst...hlakka rosalega til...er búin að lofa honum Tívolí ferð en held að ég passi á gubbu-tækinu góða!
Númer 1 á to do listanum í sumar er að klára Sex and the City bókina. Þetta er 3ja sumarið í röð sem að ég reyni við hana....hefur gengið svona vel hingað til...en það á að hafast þetta sumarið...en þetta er ein af þeim verstu bókum sem að ég hef eytt tíma í...
Jæja....þarf að fara að taka kökuna út út ofninum
Hej hej
Bökunar-Aggan




)