25ágúst

....

Lalli og Louisa eru í heimsókn hjá okkur þangað til á morgun og við erum búin að gera fullt skemmtilegt saman. Fórum á Spiseloppen í Kristjaníu í gær sem geggjaður veitingastaður. Þetta er freka slísí húsnæði og uppgangurinn þangað en svo þegar maður kemur inn þá er hann frekar kósí bara. Ég fékk mér einhvern fiskidisk og restin fékk sér hjört og við vorum öll svakalega ánægð með þetta....skylda að fara á spiseloppen í Dk verslunar-ferðinni!
Lalli vakti okkur svo 5 yfir átta í morgun en við vorum frekar sibbin en rifum okkur þrátt fyrir það á fætur og borðuðum bakaríismorgunmat...mmm!
Svo var farið uppí súkkulaðibúð til Hjalta í Fredriksberg og skoðuðum íbúðina okkar að utan á meðan við borðuðum allt of mikið af súkkulaði. Löbbuðum svo þaðan alla Istegade og upp á Strik og héngum eitthvað þar og fórum svo á kaffihús! Við tókum strætóinn 2 stoppistöðvar af því að við þurftum að kaupa okkur ís í Paradís en misstum þá af hinum strætónum (vegna græðgi!!!) og löbbuðum þá lengst uppá Amager til að far í go-kart. Það vildi svo heppilega til að brautin var ekki fyrir aula eins og okkur sem ekki eru með eitthvað go-kart próf svo að það var ekki hægt að fara. Við fengum því ekkert go-kart í þetta skiptið!
Svo var ferðinni heitið að líta á litadýrðina í nýju íbúðinni hjá Bjarna og Eddu....en þau eru að mála yfir hana...sem ég gott skil!
Svo var það heim og klipping á alla línuna og helmingurinn af hárinu mínu er farinn en það er svakalega flott!
Núna er eitthvað fólk að koma eins og Þóra og Bjarni og Edda og Freyr og Halli og fleira til okkar og við erum líka að bíða eftir pizzunni okkar! mmm

heyri seinna...Agga
25. ágúst 2006 klukkan 23:14
Agga Þöll
Engin athugasemd
24ágúst

Malmø-festivalid!

Ég og Hjalti fórum yfir til Svíþjóðar á þriðjudaginn, byrjuðum að kíkja í miðbæinn þar, sáum fullt af tónleikavænu dóti sem að okkur langaði að kaupa...eins og ný rauðvínsglös. En það var ekki talin fín hugmynd! Svo fórum við heim til Helene sem er með mér í skólanum, og hittum manninn hennar Steffan, yfir bjór. Planið var að fara að sjá Yeah yeah yeahs sem voru að spila á Malmö-festivalinu. Það var samt svo mikið vesen....þurftum að taka leikubíl að tónleikasvæðinu en samt að stoppa í hraðbanka og kaupa þetta og þetta í sjoppu...svo þegar við héldum að við værum að komast á tónleikana vorum við týnd í garðinum...en við náðum einhverjum 4-5 lögum með þeim og þau voru geggjað góð og hún svaðalega flott á sviðinu!
Eftir tónleikana á leiðinni heim byrjaði svoleiðis að rigna. Við vorum með einu regnhlífina á svæðinu...sem er úr H&M...ekkert af því...ef maður er einn!...En við reyndum að standa 5 undir henni og ég fékk einmitt gusuna af regnhlífinni á rassinn og niðurúr! En við lifðum þetta af án tiltörulega lítilra skemmda!
En eins og góðum Hjalta sæmir var hann sofnaður eftir 30 sek í lestinni og ég var orðin "ein" í heiminum með fullt af fullum dönum á leið heim frá festivalinu, blastandi Nik & Jay eða AC/DC. Frábær blanda!
En við komumst heim á endanum og sofnuðum í sófanum af því að við vorum að tala svo mikið við Daða....(grenilega um eitthvað mjög leiðinlegt).

En ég er að koma á Klakann...verð samt mest fyrir norðan og austan...veit eigilega ekkert hvernig þetta verður. Veit ekki um íslenska símann minn eða neitt af því að hann er líklegast í kassanum sem er undir öllu dótinu í geymslunni...svo að ég verð örugglega bara með danska númerið!

En er farin að taka til í herberginu áður en við náum í Lalla & Louisu á lestarstöðina, en þau ætla að gista hjá okkur um helgina. Væri gaman ef að við færum í einhvern túristapakka...sem að ég hef nánast ekki gert hérna úti! Og svo er planið að hafa hitting á Leifsgötunni á föstudaginn og hitta alla....

En farvel í bili
Aggan

24. ágúst 2006 klukkan 14:19
Agga Þöll
3 athugasemdir
19ágúst

Sumarfrí!!

Núna erum við skötuhjúin komin í sumarfrí. Ég stend á því staðföst að ég ætli aldrei að vinna þarna aftur! Þetta er bara ekki málið...allt of langt í burtu og allt leiðinleg vinna sem er í boði! En núna er þetta allt saman búið og ég get farið að brosa aftur og horft á þætti sem byrja eftir kl. 9 í TV-inu með góðri samvisku!

En í gær til að fagna sumarfríinu okkar....örugglega!!!....var haldið kokteila boð heima hjá okkur...frá klukkan 4...sem að var frekar vel sótt! En svo klukkan 8 fórum við á eitthvað lítið electronica festival...Public Service hérna rétt hjá okkur...en þar voru Trabant, Apparat og gamli KGB að spila og svo fullt af einhverjum útlenskum gaurum líka!
En það er alveg magnað hvað Rassi Prump er mikill kóngur....get ekki ímyndað mér að það sé hægt að vera flottari en hann á sviði...sjúkur!
En ég fékk rós frá Rassanum núna...seinast fékk ég kampavín....hlýt að fá eitthvað stórt næst ef ég fer!

En við beiluðum heim um klukkan 1 vegna gríðarlegrar þreytu eftir erfiða vinnuviku....sem skeður sko ekki aftur á næstunni!

Hef ekki hugmynd um hvað planið er í dag....kanski bara að slaka á!!! Þarf að ná í hjólið mitt úr viðgerð....skeður of oft...en jamm.....

bæ í bili...Aggan
19. ágúst 2006 klukkan 17:51
Agga Þöll
2 athugasemdir
14ágúst

Sunnudagur!

Búinn að vera geggjað mikill sunnudagur í okkur í dag! Erum öll 6 sem búum saman, búin að liggja fyrir framan TVið í dag...ekkert smá næs að eyða frídögunum sínum í svona rugl! Erum búin að fara 2 ferðir útá take away staðinn sem er við hliðina á i stigaganginum okkar, þannig að núna bíða 11 pizzakassar eftir því að þeim verði trítlað útí rusl...
Þarf að vakna á eftir 5 tíma....held að það sé sterkur leikur að fara að sofa!

Góða nótt!
Agga...
14. ágúst 2006 klukkan 03:00
Agga Þöll
1 athugasemd
10ágúst

Mmmm....

Vaknaði "hress" og "kát" um 5 í morgun til að fara í vinnuna. Nema hvað að það er bara gjörsamlega búið að éta mig á löppunum af flugum! Var að tala um hvað ég hafi sloppið vel í sumar miðað við í fyrra, en þá fór ég uppá skadestuen með tvöfaldar hendur eftir mýbit og 22 bit á bakinu. Þetta er samt ekki alveg svona slæmt núna en ég er komin með 9 núna á lappirnar og get varla stigið í aðra löppina útaf bólgu og á hinni er það næstum undir ilinni svo að ég get ekki verið í úti-skóm! En það er kostur í ókosti því að ég er búin að hringja mig inn farlama í vinnunni :o)

En annars eru 5 vinnudagar eftir, eftir að velja útlandaferð (skipulagsleysið í hámarki á þessum bæ!), 21 dagur í íbúðina okkar í Fredriksberg og 27 dagar í skólann....er farin að hlakka rosalega til að fara aftur í skólan og fara að gera eitthvað með viti! Er búin að vera loka pappakössum í dag í vinnunni....mjög ábyrgðarfullt starf þar á ferð...! Var svo að kaupa mér Shopaholic 3 til að lesa í lestinni sem er hin fínasta afþreiging...er 80 mín í lest á dag + strætó! sem er bara skemmtilegt. Og svo er ég farin að skrifa eins og ég búi í útlöndum og tala þannig líka (hef ég heyrt)....og það er bannað að vera vond við mig útaf því!!

Ætla að hætta þessu rugli....hef ekkert merkilegt að segja
Farin...
Agga
10. ágúst 2006 klukkan 21:13
Agga Þöll
3 athugasemdir
09ágúst

út-ferd?

Það er eins og við eigum ekkert að fara til útlanda... erum búin að vera að skoða ferðir á netinu og sáum eina ferðaskrifstofu sem að okkur leist ágætlega á....5.000 danskar fyrir flug + hótel fyrir 2 til Portó hjá Spies....ætluðum nú að arka uppá ferðaskrifstofu og ræða við þá...vorum með heimilisfangið á hreinu (að við héldum). Þessi gata var ca. svipuð löng og Strikið og við löbbuðum og löbbuðum og hjóluðum upp og niður en ekki fundum við pleisið...
Endaði með því að við fórum bara niðrá Islands bryggju og hittum krakkana... vona að þetta gangi upp á morgun!

7 dagar eftir í vinnunni og það varður sko þvílíkur fagnaður þegar þetta er afstaðið....farin að hlakka til að fara tilbaka í skólann

En er einhver sem veit hvenær Spotti og frú koma út....ef þau eru ekki búin að beila eins og Einar Geir.....(ekki sátt við hann sko)???

Farin að horfa á Klovn...
aggan

09. ágúst 2006 klukkan 00:29
Agga Þöll
11 athugasemdir
04ágúst

Föstudagurinn mikli!

Langþráð helgi gengin í garð...þó svo að hún sé ekki löng hér úti í DK...maður getur alltaf þegið frídag...ekki satt??

Hjalti er á karlakvöldi með strákunum útí Valby og ég og Þóra ætlum að hittast heima og fá okkur smá bjór saman. Er ein heima í kvöld en það hefur ekki gerst hér á þessum bæ í meira en korter í senn síðan við fluttum inn. Það er að mestu útskýrt af því að við erum 6 núna sem búum saman hérna í 3 herbergjum svo að það er yfirleitt mikill gestagangur og kósý hér!

Lalli og Lúisa fluttu út í dag en stoppuðu stutt í Köben svo að ég hitti þau ekki þó ég hefði viljað. En nú er komin hvatning fyrir okkur sköturnar að ferðast alla leið til jótlands....ekki hægt að búa í DK án þess að fara þangað!

Erum ekki ennþá búin að ákveða hvert við förum í sumarfríinu okkar...erum að spá í Krít, Póllandi, Þýskalandi, Ítalíu eða Frakklandi. Vitum ekki heldur hvort að við ætlum að fljúga eða keyra, búa á hoteli eða í tjaldi, fara í viku eða tvær!! Það er sko ekkert grín að fara í frí sko....loksins þegar maður fær það!

Gæti svo verið að maður kíki á vatnafestivalið sem er niðri á bryggju hjá okkur um helgina. Hægt að gera allan andskotan + opið í fiskitorginu (kringlunni) til 12 í kvöld....frekar skrítið að vera svona lengi að sjoppa!!!

Ætla að fara í sturtu og lita á mér augabrúnirnar....er orðin eins og albinói eftir sumarið...svo mikil sól sko.... :o)

Farvel og allir góða skemmtun um vesló....
Aggan
04. ágúst 2006 klukkan 23:29
Agga Þöll
Engin athugasemd
02ágúst

Miðvikudagur

Er svo löt og sybbin að ég get ekki neitt!
Eftir stuttan túr á bryggjunni í gær fórum við heim, vegna of mikils klæðnaðar!
Þegar það var kominn sofu-tími þá kom þessi líka svakalega rigning með tilheyrandi þrumum og eldingum! Ég veit ekki af hverju en ég elska bara svona veður og vil helst fara út og fá mér góðan göngutúr eða að vera heima með kakó og kertaljós! En þar sem að ég var með tannburstann uppí mér þegar herlegheitin byrjuðu varð mér að láta mér nægja að hafa gluggan opinn og láta rigna inn!

Frussinn minn er kominn úr sumarfríi og kom tvíefldur til baka...þarf að tala upp fyrir þessar 3 vikur sem að hann missti út!
Og ég er öll orðin útí marbletturm eftir dásamlegu vinnuna mína (ekki eftir Frussa samt)...er inní því sem heitir DPS'en sem gengur útá það að setja bækur ofaní kassa á hálfgerðu færibandi, nema með hjálp frá tölvum og róbótum sem er frekar fyndið! En þrátt fyrir það, þarf maður að hreyfa sig geggjað mikið...eigilega eins og pallatími í world-class nema það að þetta eru 8 tímar í stað 1...og ég er svo mikill klaufi að ég rek mig alltaf í eitthvað í látunum og lít því út eins og ég sé barin heima hjá mér! Og svo gengur Hjalti við hliðina á mér í wife beaternum og með pilotinn...

Ég veit ekki hvað er að mér, en það virðist vera sem að ég bara engan vegin geti lært að elda eitthvað sæmilegt! T.d. í gær "elduðum" "við" (hjalti) svona ömmu pizzu. Ég ætla að fá mér eina þegar ég kem heim í dag nema að Hjalti er að fara út í fóbó...en hann var svo sætur að setja á pizzuna og setur ofninn í gang og segir mér svo alveg hvernig afgangurinn eigi að fara fram...."ljósið á ofninnum þarf að slökkna og svo 18 min inni". Ekki málið geri það....þetta virkaði í gær hjá Hjalta....! En...neeii....mín varð hrá í miðjunni....annaðhvort var hann að plata mig, eða hann gleymdi að segja mér að ég þyrfti að tékka áður en ég tæki hana út eða þá að eldhú-heimilistæki almennt eru á móti mér! Dularfullt mál...

Ég er drekinn úr eldhúsinu....(vei!!)
Agga
02. ágúst 2006 klukkan 22:09
Agga Þöll
6 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur