28júní

Tjalda-færsla!

Búin að vera uppá festivali í dag að færa tjöldin okkar um stað svo að nú erum við komin í camp...svona margir Íslendingar saman! Það er búið að færa ca. 20 tjöld og reisa 30fm partý-tjald þar sem að við erum núna.
Tjöldin okkar eru samt orðin blaut í gegn og það er bara eftir 2 sólarhringa. En ég trysti á þessa líku fínu veðurspá sem er á mbl núna! Treysti á það að rigningin sé búin í bili.

Hjalti er búinn að taka sér frí úr vinnunni á fim og fös svo að það er planið að sofa upp frá á morgun og út helgina.

Farin að lúlla
Agga
28. júní 2006 klukkan 01:46
Agga Þöll
2 athugasemdir
26júní

Roskilde festival!

Roskildan er byrjuð og við búin að fá fyrsta smakkið af útileigu-þynku. Hallur & Þóra ákváðu á laugardaginn að koma til okkar og elda saman með okkur og spila og læti, og ætluðum svo að fara um 7 uppá svæði og tjalda.

Eftir marga bjóra, blak og rauðvíns-belju, þá fannst okkur sniðugra að fara uppá svæði strax...eða um 1 leytið. Þar sem það var að opna þá héldum við að við værum með nett gott plan...en það voru greinilega mörg þúsund manns með jafn "gott" plan og við.

Komum um 2 og stóðum í kremjuröð til 4 til að fá bandið okkar. Svo komum við inná svona before-svæði þar sem að allir sátu niðri eða mjög æstir að hlusta á vi er hvide, vi er røde (heyrðum það ca. 20 sinnum á stuttum tíma) og biðu eftir að allt svæðið myndi opna kl.8.

Fékk hausverk og ákvað að fá mér treo. Þar sem að við áttum bara bjór þá fannst mér sniðugt að reyna að redda þessu leiðilega vandamáli á mjög heimskann og frábærann hátt. Bjór er með bubblum. Treo gefur bubblur. Bjór + treo = foss + rosalega vont. Allavegna þá geri ég þetta ekki aftur....hausverkurinn er betri!

Fór á klóstið rétt fyrir 7 og klofaði og steig á fullt af fólki...á leiðinni til baka opna þeir svæðið fyrir tíman og allt verður kreisí, fólk öskrandi, hlaupandi, missandi tjaldsúlurnar sínar og læti og alveg skítsama af því að það er að fara að taka besta stæðið á svæðinu! Ég hef aldrei séð fólk jafn ógeðslega fljótt að tjalda tjöldum...henda þeim út og taka pláss...og þvílíkur fjöldi að hlaupa...eins og það hafi verið að gefa milljón á hinum endanum á túninu.

Þegar ég og Þóra vorum búinar að finna strákana, eftir hræðilegum leiðbeininugum, fórum við að tjalda og reyna að berjast fyrir lausa plássinu sem að við náðum fyrir þau tjöld sem ekki voru komin...gekk illa. Skriðum inn í tjaldið og fórum að sofa. Vaknaði klukkutíma seinna við það að við erum beðin um að færa tjaldið okkar um 10 cm. Jejj...einmitt mátinn sem ég vildi vera vakinn upp á...og það er ógeð að sofa í tjaldi þegar það er sól úti...vibba hiti og læti...og auðvitað þynkan. Reyndi að vekja Hjalta en hann var ekki beint samvinnuþýður við það að yfirgefa tjaldið þar sem að honum fannst það ekki sniðugt. Ég var því neydd til þess að færa það með nýja nágrannanum með honum inní...hressandi! Var að deyja úr svita og þreytu þannig að það var mun skemmtilegra að sofa úti í grasinu....úff...

Fórum heim svo ónýt af svefnleysu og þynnku. Horfðum á 5 þætti af Prison break, borðuðum og sváfum.

Erum að fara núna og gera aðra tilraun til þess að kíkja á Skelduna...

bæó
Agga
26. júní 2006 klukkan 19:50
Agga Þöll
Engin athugasemd
23júní

Sumarfrí!!

Loksin, loksins er ég búin í skólanum og líka tími komin til.
Fór í munnlegaprófið í gær, sem frestaðist um 35 mín útaf prófi sem var á undan okkur, og djöfull var það óþægilegt, við allar vorum orðnar nett stressaðar.
En það gekk vel og fékk 7 og fengum 2 kúrsa metna, heimspeki og tekst og tegn, sem er mjög gott!

En auðvitað til að fagna sumarfríinu, fórum við stelpurnar í kantínuna og fengum okkur öl...
Svo klukkan 6 ákváðu við að fara heim en ég náði að plata Helene með mér á Kaffi Moose þar sem við hittum kallinn minn og Hall & Þóru. Svo skriðum við þar út rétt fyrir miðnætti og fórum heim öll sömul.

Núna hef ég ekkert að gera......get farið að klára að lesa Shopaholic i new york...jejj.

Var að fá í hendurnar miðana á Roskilde festivalið frá póstinum....var viss um að þeir myndu týnast en það gerðist ekki...jejj.

Farin að sækja einkanna dótið til að fá peninga frá lín.

Bæbæ
23. júní 2006 klukkan 15:16
Agga Þöll
Engin athugasemd
22júní

2 og hálfur....

Þetta er nú meria ruglið. Er búin að lesa bókina aftur, lesa verkefnið yfir aftur og læra allt utanað. Búin að fara í sturtu og svaf líka..ekki mikið samt, góða 4 tíma og núna dauðleiðist mér....búin að öllu sem ég þarf að gera og er bara að byggja upp solid stress!! Það er 2 og hálfur tími í það að prófið byrjar og ég er geggjað þreytt!!

Hefði átt að sofa til 8...bömmer!

Annað, í gær ákvað ég að vera dugleg að þvo þvott...þar sem það er ekki búið að gera það lengi voru það margar vélar. Íbúðin okkar eru góðir 31 fm svo að það er ekki mikið pláss hérna....en hvað haldiði...auðvitað þurfti þurrkarinn að bila...svo að núna eru handklæði, rúmföt, sokkar og föt, úr 5 fullum þvottavélum, útum alla íbúð. Svo fannst Hjalta mun sniðugra að láta mig redda þessu leiðinlega vandamáli þegar ég átti að vera að læra, á meðan hann fór bara að sofa....grófur gaur!!!

Later...Aggan
22. júní 2006 klukkan 13:30
Agga Þöll
Engin athugasemd
22júní

Þetta styttist allt....

Jæja....13 tímar í munnlega prófið. Mikið eftir að gera, á eftir að læra 3 bls "uppleik" utanað (á dönsku), lesa aftur eina bók uppá góðar 200 síður, lesa verkefnið okkar aftur og sofa einhvern slatta!

Ég er samt súper bjartsýn á þetta og á bæði eftir að klára listann minn og rúlla upp þessu prófi :o)

Er ekki orðin stressuð ennþá...

Er samt með ansi skemmtilegan kennara sem ég skil ekki og ef það tekst ekki í fyrsta að skilja þá þarf hún alltaf að að öskra á mig eins og ég hafi ekki heyrt í henni af því að ég er heyrnalaus....og þegar hún byrjar að öskra þá heyri ég ekki í henni af því að ég fer að spá í það hvað ég hefði gert vitlaust....langar bara að gráta þá!

En ætla að hætta þessu heppe blaðri og fara að gera eitthvað með viti....

Og klukkan 3 á morgun verð ég komin í sumarfrí (vonandi) með einn kaldann bajer í kantinunni...

Adios
Aggan
22. júní 2006 klukkan 03:15
Agga Þöll
Engin athugasemd
19júní

Það kemur alltaf 1 ömurlegur dagur inn á milli!!!

Það er gjörsamlega ekki hægt að finna pínu lítinn einbeitingardropa í líkamanum mínum!!!
Vaknaði þannig að mig langaði aldrei að vakna....við kaffilykt snemma í morgun....fyrir þá sem ekki vita þá hefur mér alltaf fundist kaffi mjög vont og ég gjörsamlega hata lyktina af því fyrir hádegi. Nema það að Hjalti er að fá sér sopa áður en að hann fer í vinnuna kl.6....hversu vondur getur heimurinn verið. Ég sem ætlaði ekki að vakna fyrr en kl.8 reyndi auðvitað aftur að fara að sofa...þetta eru alveg 2 tímar. Klukkan 7 var kaffilyktin farin og sólin komin upp og ég nýsofnuð. Það var heldur ekki séns í helvíti að ég flri að vakan kl.8 svo að ég snúsaði til kl.11. Hvað er málið með það....það er ekki eins og ég viti ekki að ég eigi ekki eftir að vakan fyrr en eftir klukkutíma...af hverju nennir maður að láta vekja sig á 6 mínútna fresti til þess að snúsa en ekki að stilla klukkuna aftur kanski 2 tímum seinna???
Loksins þegar ég kem mér fram úr er ég svo massasveitt eftir sólina að mig langar að láta renna í bað og sofna þar....en það er problem þar sem það er ekki í boði!!
Fann á mér að þetta væri ömurlegur dagur til þess að læra...en það er ekkert hægt að flýja frá munnlegu prófi á dönsku!
Fer útá bókasafn í góðri trú um það að ég finni einbeitingu og áhugasemi fyrir því að ég er að gera, á leiðinni.
Þar var ég heldur betur svikin...

Kem útá bókasafn og einhvernvegin gat ég enganvegin komið mér fyrir...borðið of hátt til þess að ég gæti skrifað á tölvuna...prentarinn allt of langt í burtu...vont jógúrt sem ég tók með mér og gleymdi mikilvægum pappírum heima og það hætti aldrei.
Til þess að toppa frábært start á deginnum þá fattaði ég klukkan hálf eitt að ég átti eftir að melda mig á kúrsa fyrir næsta ár...það átti að gerast klukkan 12 í dag. Ég í hendingskasti hleyp að næstu tölvu og þar sem að ég var ekki búin að huxa mjög mikið í það hvað ég ætti að velja ákvað að taka sálfræði og uppeldisfræði á næstu önn. Núna vona ég bara að þessi 30 mínútna of seina melding verði samþykkt!

Ég gafst upp á bókasafninu og fór heim og borðaði vont rúgbrauð sem ég get svarið fyrir að er ekki rúgbrauð! Ætlaði að horfa á One tree hill klukkan 4 en akkurat á milli 4 og 5 þá duttu allar sjónvarpsstöðvarnar út nema 3 svo að ég horfði á 7th heven eða eitthvað álíka sem er leiðinlegt.
Svo þóttist ég læra og er ennþá að læra og verð það áfram þar til að ég er búin að þessu drazli.
Ég er orðin svo innilega sulten og Hjalti fór að kaupa beyglu fyrir mig, gleymdi henni heima hjá Halli & Þóru í köben og fór að sækja hana, útaf því að það var svo geggjað sniðugt missti hann af lestinni sem gengur á 30 mín fresti til heim.

Ég vona virkilega að dagurinn á morgun verði góður dagur því að hann hlýtur allavegna að verða betri en þessi!
Ætla uppí rúm, klára að læra og horfa með öðru auganu á Wedding singer, sem var góð fyrir mörgum árum síðan og vona að hún sé það ennþá!
Og ég vil segja sorry við þann sem var svo þolinmóður að lesa þetta...óheppinn!


19. júní 2006 klukkan 23:58
Agga Þöll
Engin athugasemd
18júní

Úff....

Kominn sunnudagur og þessari "afslöppun" fer að taka enda þar sem að það er nett nött að gera hjá mér í næstu vikuna. Það eina sem að ég get huxað um núna að þessi skóli er að fara að taka enda.

Fórum á Vesterbro festival í gær í tilefni af því að það var 17.júní, þar koma fram svona litlar óþekktar danskar hlljómsveitir að spila. Við vorum flest frekar tussuleg eftir fína törn á Skjaldbökunni og hinum færeyska Skarv á föstudeginum svo að við sátum í ca. 6 tíma á einhverju torgi inná svæðinu og spjölluðum og drukkum smá bjór. En góður stemmari þarna inni en beiluðum samt frekar snemma!!!

Við Hjalti fáum alltaf hálfgerða heimþrá þegar að við komum á Vesterbro....þetta er bara svo frábært hverfi með svo miklu öðruvísi lífi en alls staðar annars staðar í Köben...allir uppáhalds take away maturinn okkar þarna, kaffihús, almenningsgarðar, flottar fatabúðir og furðulegt lið....eins og gaurinn sem að við leigðum hjá hann Fritz...sem var nett hress gaur.

Erum búin að komast að því að HM boltinn er frá Adidas....vorum að kaupa okkur blakbolta sem á að vera notaður geggjað mikið í sumar og hinn var fyrir okkur. Keypti líka í leiðinni Kawasaki, sem eru snilldar skór!!!

Skólinn er búinn hjá mér á fimmudaginn og Roskilden verður opnuð á sunnudaginn eftir viku, og verður í viku og ég þarf að fara að finna mér vinnu í júlí....sem ég hata að gera...langar bara að vera að gera ekki rasss í bala nema að ná mér í brúnku.


Er farin út að ná í brúnku og læra.....

bæ bæ
agga brúnka



18. júní 2006 klukkan 15:54
Agga Þöll
Engin athugasemd
16júní

Bókasafns panik!

Hef komist að því að þessi síða er enganvegin eppla-væn þar sem ég get ekkert gert hérna að viti...svo ef þið sjáið ekki það sem ég er að skrifa er það ekki mér að kenna.

En senn líður að Roskilde festivalinu sem er skylda að fara á ef að maður á heima í DK og hvað þá í Hróarskeldunni sjálfri. Þar sem að við vorum geggjað blönk á seinasta ári þá fórum við ekki (lágum grátandi heima), svo að það er búið að vera nokkuð augljóst að við værum að fara á þessu ári. Þar sem að við erum frá Íslandi erum við ekki að spá í neinu sem er meira en viku framundan.

Í dag sit ég uppá bókasafninu í RUC (skólanum mínum) og stelpa úr hópnum mínum er að vafra á netinu og spyr mig hvort að ég sé ekki örugglega búin að kaupa miða á festivalið...sem við vorum ekki búin að...þá segir hún mér að það sé orðið uppselt!!! 
FUCK...
Það er enganvegin málið að vera í hálfgerðu panik kasti á bókasafni að hringja útum allan bæ til að redda málunum, svona öskur-hvíslandi.
Datt svo í hug að tékka á Íslandi hvort að það væru til miðar þar...og jú....12 miðar eftir og við báðum Siggu tengdó að fara að kaupa miðana med det samme fyrir okkur og Hall og Þóru, sem og hún gerði! koss til tengdó!

En núna er bara að fara að kaupa sér tjald og bjór og gera regngallann redí! 

Heimsóttum skattinn líka í dag og kreistum útúr honum 8.000 dkr ekki svo slæmt, svona rétt fyrir Roskilduna!!!

Vika í loka-munnlega prófið og nóg að gera hjá mér, sem er bara gaman... -hóst-

farin að lúlla
aggan
16. júní 2006 klukkan 01:30
Agga Þöll
Engin athugasemd
14júní

hmm....

Ég og Hjalti ákváðum að fara til Köben í gær og sóla okkur niðri á Islands brygge. Þóra og Hallur komu líka ásamt góðvini okkar Mr. Tuborg. Ég er komin með nett far útum allt....eftir bikiníið, sporthlýrabolinn, hlýrabolinn og hárið....þetta er allt geggjað mikið planað hjá mér. Hjalti er líka kominn með svona wife beater far...en far virkar ekki eins og bolurinn...ég get allavega sagt hvað mér finnst þegar hann er ber af ofan.
Fyrir þá sem ekki vita þá er wife beater hvítur hyskis hlýrabolur og sagan segir að þegar kallinn er kominn í bolinn, þá láti hann ekki kjellinguna sína vaða yfir sig, heldur láti hana “heyra” það!

En svo eftir bryggjuna fórum við öll á kaffihús (líka Túbbinn) og fengum okkur að borða og horfðum á Brazilíu og eitthvað annað sniðugt lið...og stærstu umræður okkar í kringum þennan leik, var það hvort að boltinn væri frá Nike eða frá Adidas....við komumst ekki að því.... reyndum samt öll mikið í 25 mín...og það er eins og það sé búið að líma dömubindi á hann.....svo var líka mikið talað um af hverju þessir stóru kallar eru allir svona illa tenntir....þeir eiga massa mikið af pening og láta ekki laga kjaftinn á sér.....komumst heldur ekki að niðurstöðu þar! Finnst ekkert rosalega gaman að horfa á fótbolta! 

Það er sem betur fer “vont” vedur í dag svo að ég lifi einum degi lengur án húðkrabbameins og stærri bjórvömb...spurning um að reyna að eyða degnum í eitthvað uppbyggilegt eins og að plögga tónlist inná Makkann minn...finnst ég eiga það skilið að vera í sumarfríi en ekki að vera að læra svona mikið. Finnst það frekar unfair að ég sé ekki búin í skólanum fyrr en 22. júní þegar HÍ var búinn fyrir mánuði síðan!!! grát....

tónlistin bíður...eða bækurnar..
aggan
14. júní 2006 klukkan 15:47
Agga Þöll
Engin athugasemd
12júní

Sól og rugl!!!

Í tilefni af því að ég sé búin að fá Makkann minn til baka úr viðgerð eftir 6 vikna langa bið finnst mér mjög sniðugt að fara að blogga....en kanski ekki á morgun!!!

En er fólk í alvöru að fatta þessa síðu??? Á skalanum 1 til 10 yfir það hvað ég er lost núna er ég góð nía!!! Þetta á eftir að taka nokkra mánuði að komast að því hvað ég er að gera hérna.
Auðveldir hlutir eins og að breyta litnum á stöfunum er ekki í boði fyrir mig, kanski útaf því að ég kann ekkert á tölvur eða að ég á Makka sem er annars besti vinur tölvu-aulans nema stundum!!!

En annað, það er 25,5 stiga hiti í Roskilde...sem er ekki slæmt, nema það að það er geggjað heitt...ég gerði góða tilraun til þess að fara útí sólbað en flúði inn eftir klukkutíma og sit núna fyrir framan viftuna okkar sem hefur bjargað ófáum mannslífum seinasta sumar!!!

En þarf að fara að læra núna...munnlegt "próf" á morgun....upphitun fyrir alvöru munnlega úr í verkefninu sem við erum búnar að skrifa í 3 mánuði...og þarf að fara að gera eitthvað sniðugt!!!

Hilsen Agga
12. júní 2006 klukkan 18:22
Agga Þöll
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur