Sumarið er klárlega komið þar sem að það er 20 stiga hiti og sól alla daga...love it! Skreið útí garð áðan til að lesa í smá tíma...held að ég hafi afrekað að brenna á bakinu...svona gerist þegar ég smyr mig ekki inn í faktor 50+!
Verkefnið okkar komið á fullt...erum á skítafloti sem er frekar súrt þegar það er 20+ úti...maður bítur bara á jaxlinn og nýtur sumarsins bara seinna...! Eins gott að það verði ekki endalaus rigning þegar ég er búin í skólanum! En annars þá er þetta BA verkefnið mitt sem ég er að gera núna og held ég hafi sjaldan tekist á við jafn leiðinlegt verkefni...enn og aftur verð ég að bíta í það súra og huxa að það séu bara 1 og hálfur mánuður eftir....sweet!
Ég og Hjalti erum að fara að kaupa okkur Roskilde miðana í vikunni svo að það er pottétt eitthvað sem að við getum hlakkað til...spái 30 stiga hita, sól, litlum svefni og þynku alveg eins og þetta á að vera!!!
Eigum við eitthvað að ræða þennan leik...nei hélt ekki...en ég veit samt hvar dj'ar sem eru í félagi hræðilegra plötusnúða fá vinnu...púha!
En kjellingin er orðin 25 og hef því löglega afsökun fyrir að fitna um 20 kg, ganga með gleraugu og segja "vá hvað þú ert orðin stór...þú varst bara svona stór þegar ég sá þig seinast" (og gera svona með hendinni eins og allir muna eftir frá fermingardeginum sínum). Án efa minn scary-age...! Deginum var eytt á versta mögulegan hátt þar sem að ég var að fara í loka - munnlega prófið deginum eftir og mikið kaos þar á ferð. Ég er því ekki búin að halda uppá ammlið ennþá, svo að það verður bara öll vikan tekin í það!!! En munnlega prófið gekk bara rosa vel þrátt fyrir hressilegt stress og svefnlausar nætur...náði og vel það...mjög sátt Svo er framundan bara frí og læti til 4. feb...ætla að liggja með tærnar uppí loftið og njóta þess útí yztu!
Við skötuhjúin komin heim í höllina okkar eftir frábær jól og áramót heima á Klakanum. Ég var á Akureyri yfir jólin og kom svo suður 31. des í gamlársgírinn til Hjalta. Það var lítið annað gert en að slappa af, borða, spila og að sjálfsögðu eyða tíma með fjölskyldunni. Alltaf svo huggó. Svo tóku matarboðin og heimsóknirnar við fyrir sunnan og við Hjalti rúlluð yfir bæinn yfirfull af góðum mat að hitta ættingja og vini. Takk kærlega fyrir mig/okkur allir saman
Svo áttum við flug 7:15 á þann 5.jan út til DK en það er frekar snemmt fyrir fólk sem er gjörsamlega búið að snúa sólarhringnum við. Við vorum rétt búin að sofa í hálfan annan tíma þegar við þurftum að vakna aftur...en ég hefði klárlega sofið yfir mig ef að ég hefði þurft að koma mér sjálf uppá völl. Eftir smá svefn í vélinni þurftum við að setja hausana aftur í sambandi til þess að komast heim í kuldanum! Þegar við komum heim í íbúð mætti okkur bara algjör skíta kuldi. Við slökktum á ofnunum á meðan við vorum á Klakanum og svo er ennþá ekki búið að mála gluggana okkar svo að það blæs inn á milli þeirra. Bögg! Ég opnaði ísskápinn og hélt að hann væri bilaður af því að það kom bara "heitt" loft út úr honum Eftir innihladssmökkun hjá Hjalta komumst við að því að það væri bara svona kalt inní höllinni okkar. Við ákváðum þreytt og köld að fara í bæinn og redda seinustu jólagjafa-skiptunum á meðan íbúðin væri að rembast við að hitna! Þegar við komum heim var örugglega að skíða yfir 10 gráðurnar og við ákváðum snögglega að skríða undir teppi í stofunni í ullarpeysunum og sjónvarpssokkum, kveikja á öllum kertum í húsinu og loka hurðunum. Við gátum ekki huxað okkur að sofa í aðal-frystikistunni, eða inní herbergi fyrstu nóttina svo að gestadýnan kom að góðum notum.
Núna - 2 dögum seinna er hitinn AÐ verða bærilegur...ennþá ullarsokkar og flíspeysur og teppi innblandað í málið! Þetta kemur allt á endanum...er ekki alveg að koma vor?
Munnlega prófið í næstu viku sem að ég ætla bara að rúlla upp...fékk samt smá flog þegar ég fattaði hvað það væri stutt í það...er búin að taka mér langt og gott jólfrí þannig að ég þarf að fara að spýta í lófana!
En...gleðilegt nýtt ár allir saman og takk fyrir það gamla
Undur og stórmerki eru að gerast...held að ég fái nánast samviskulaust jólafrí þetta árið! Á seinasta ári fór allt jólafríið í að vera með samviskubit yfir því að maður ætti að vera að læra því að það voru svo mössuð skil rétt eftir áramót...en núna...frí! Ekkert nema frábært að geta loksins notið þess að vera í jólafríi!
Tengdó komin í höllina...og verður hjá okkur allan nóvember því hún er í starfskynningu á löggustöð hérna í Köben. Daginn sem að hún kom út þá ákváðum við að boðra kínverskan í kvöldmat...sem var voða gott. Svo er mest bara búið að taka það rólega... búin að smakka jólabjórinn, elda góðan mat, láta lögguna stoppa ljóslausa tengdó og bara slappa af!
Kallinn minn er kominn með Hitler klippingu...hann er nottleg alltaf voðalega sætur en ég fékk samt smá sjokk þegar að ég sá hann fyrst með þetta dú!!!
Mamma splæsti í smartsíma fyrir okkur námsmennina þannig að við erum núna komin með íslenskan heimasíma í DK'inu...þannig að endilega sláið á þráðinn til okkar! Fengum líka ferlega flott númar...enda líka hand-plúkkað af mömmu: 496 0909
En það er alveg merkilegt...ég er búin að vera með þessa síðu í hálft annað ár og ég kann ekkert nema að setja inn stafi...PUNKTUR! Engar myndir eða linki við hliðiná.
Núna erum við Hjalti komin í hópinn "Miskunnasömu nágrannarnir - í bili", þ.e.a.s. vorum að kaupa okkur þráðlaust net og við getum enganveginn fundið út úr því að læsa því...tökum þessu með ró og á meðan geta nýfluttu aumingjarnir hægt á netinu okkar (been there, done that!!!)
Heilu staflarnir af þroskasálfræði bíða eftir lesningu þannig að ég ætti að fara að spýta í lófana...
Bið að heilsa og vona að við heyrum í ykkur...
MissDolla-Aggan!
06. nóvember 2007 klukkan 11:13
Agga Ţöll 4 athugasemdir
Það er án efa hetjuleg frammistaða hjá mér í þessum blogg-málum...
Fór til hné-doktors á miðvikudaginn útaf...hnénu á mér...hahaha! En það er eitthvað að liðþófunum mínum og hann ætlar að skera mig upp 8 nóvember og tékka hvað hann getur gert fyrir mig! Fór og talaði í leiðinni við svæfingarlækni sem að datt í hug að spyrja mig hvort að ég vildi fylgjast með aðgerðinni vakandi eða hvort að ég væri algör kjúkklingur...ég horfði frekar hneigsluð á hann og sagði kurteisislega að ég vildi vera "helt væk"....eða algörlega útúr kortinu á íslenskunni...ekki áhuga á einhverjum aðgerða-hetjuskap sem að er ekki til! En annars er þetta voða lítil og meinlaus aðgerð...doksinn sagði að ef allt gengi upp þá ætti ég að geta farið að hjóla aftur eftir viku...
Annars er bara skóli og aftur skóli....Hjalti er aftur farinn í skóla....í 1.bekk í konditoranum...voða gaman hjá okkur...
Litli bró hann Egill Andri átti ammli 16 og varð 10 ára....til hamingju trítill!
Það er gjörsamlega ekkert að frétta af okkur....líður eins og í gamla daga þegar að maður átti að skrifa ritgerð í skólanum sem átti að vera ákv. löng en seinustu 100 orðin voru virkilegt reipitog...djæses... Gæti sagt ykkur frá því þegar að ég reyndi að downloada nýju ritvinnsluforriti og það virkaði ekki....eða að það að ég fái að vita um 3-4 vikur hvort að ég fái SU (danski skóla styrkurinn) eða ekki...eða að við erum ekki ennþá byrjuð að mála stofuna af því að við vitum ekki hvaða liti við eigum að mála í...en já....reyni kanski bara að skrifa aftur einhverntíman seinna...frekar fyrr en seinna...
Bið að heilsa bara... "Hetju"-aggan...(*hóst*)
21. september 2007 klukkan 15:33
Agga Ţöll 6 athugasemdir
Þá er skólinn byrjaður á fullu sem að þýðir víst það að maður þarf að fara á læra á fullu....soldið erfitt svona strax eftir sumarfríið. Furðulegt hvernig maður er...maður getur ekki beðið eftir sumarfríinu á vorin en samt er maður farinn að hlakka svo til að byrja aftur í skólanum, lesa og skrifa verkefni....eitthvað sem að maður hristir hausinn yfir seinna á önninni...
Er búin að vera að lesa og aftur lesa í dag og glósurnar mínar eru illskiljanlegar fyrir aðra en mig...þær eru samblanda af íslensku, dönsku og ensku og mörgum litum og strikum sem að gegna hver sínu hlutverki...
Sófus er fluttur að heiman og við erum búin að vera að brainstorma hvað við getum gert við stofuna í höllinni okkar, fyrst að við fáum að vera hérna lengur...eftir ferð í IKEA í gær erum við orðin nokkuð plönuð upp fyrir haus held ég bara...og ég fékk að kaupa stórt blóm sem að ég get dundað mér við að drepa í vetur og lífga svo hægt við og drepið svo aftur osv. (hef merkilega góða hæfileika á þessu sviði...ekki að segja að hann sé "mannúðlegur"...eða "plöntúðlegur en þetta skeður bara alltaf...)
Jæja...skemmtilegar sálfræði kenningar bíða spenntar eftir að verða lesnar....og ég auðvitað jafn spennt....
Farvel Teori-aggan
05. september 2007 klukkan 14:41
Agga Ţöll 5 athugasemdir
Þvílík afköst hafa aldrei áður sést.....fríið mitt er alveg að verða búið....
Frá því seinast....Búlgaría...geggggjað...hefði viljað vera aðeins lengur en við nutum ferðarinnar samt alveg í botn...með sól, bruna, nuddi, djammi, vínsmökkun, góðum mat og án efa líka vondum mat líka. Vorum ekki rænd eða stungin eða eitthað verra...frábært ferðalag í góðum félagsskap....
Lilli bró kom svo daginn eftir að við komum heim og var hjá okkur í viku...held að okkur hafi gengið ágætlega. Fórum til dæmis í dýragarðinn í Köben sem kom mér bara skemmtilega á óvart! Hef aldrei verið mikið fyrir dýr eða dýragarða en þarna var enginn að banna mér að banka í glerið eða haga mér "illa"....æææ!!! Langaði líka að taka flest dýrin með mér heim...það er svona að horfa á ömurlega leiðilegar myndir eins og Happy Feet...!!!
Sama dag og Sindri bró fór heim þá flutti Hjalti kóp/hinn (ekki minn) eða Sófus inn í stofuna hjá okkur...og verður þangað til um mánaðarmótin...
Vann seinasta daginn minn í gær....dejligt....og skólinn er að fara að byrja á mánudaginn svo að ég ætla að taka nokkra daga bara til þess að anda og slappa af. Farin að hlakka rosalega til að byrja í skólanum aftur eftir sumarfríið og byrja í "nýjum" bekk/braut.
Verkamanna-málara-góð-vinir-mínir ætluðu að koma hérna fyrir meira en viku síðan og við þurftum að láta þá fá lykla af íbúðinni med det samme (þannig að Hjalti minn á ekki neina lykla lengur....æææ). Þeir komu um morguninn klukkan hálf 8 og ég sagði þeim að pilla sig og koma aftur 30 mín seinna...þeir eru ekki ennþá komnir...stundvísi??? Er ekki alveg viss um það....
En íbúðarmálin....fengum íbúð á Öresundskolleginu rétt áður en við fórum til Búlgaríu og ætluðum að flytja úr höllinni okkar núna um mánaðarmótin, en svo vildi gamli yfirmaðurinn hans Hjalta ekki að við flyttum og bauð okkur að vera lengur svo að við tókum þá ákvörðun að segja upp íbúðinni á kolleginu og halda höllinni í þann tíma sem að við erum hérna úti í DK. Sem er náttl fráb!!!
Mest lítið að frétta úr DK'inu. Er komin með einhverja vikar vinnu hjá póstinum....sem er bara fint....en frekar erfitt samt. Læknirinn minn heldur að ég sé með skemmda liðþófa af því að ég á rosa erfitt með að hjóla mikið og labba upp stiga...en svo skemmtilega vill til að það er nánast það eina sem að ég er að gera í vinnunni minni svo að ég er algjör aumingi. Það góða við þessa vinnu er að maður er alveg laus við súra bossa, tímapressu og maður fær útiveru (smá brúnku) og hreyfingu (sem að manni veitir aldrei af)
Á frídeginum mínum í morgun...á sunnudegi (var að vinna í gær)....fóru vinnumennirnir sem eru að fara að gera við þakið á blokkinni og eru ekki búnir að gera eitt handtak alla vikuna, að vinna kl 8 í morgun...beint fyrir utan gluggan okkar...við að setja upp stillansa! Hvað á það að þýða á sunnudegi??? Bögg, bögg, bögg! Var rosalega reið útí lífið og tilveruna....!!
Erum að fara til Búlgaríu á þriðjudaginn...erum orðin geggjað spennt öll saman. Vorum að reyna að pakka því að það er svo mikið sem að við þurfum að gera á morgun fyrir utan það að við erum bæði 2 að vinna. Við verðum bara 1 viku en ég er held ég að pakka fyrir 8 vikur! Hræðilega erfitt að ákveða svona marga hluti á sama tíma! Treysti á það að Þóra eigi líka við sama vandamál að stríða og ég, svo að Hjalti skilji að þetta sé algengt STELPUVANDAMÁL!!!
Fengum tilboð fyrir helgi frá Öresundskolleginu um að við gætum fengið íbúð sem að við erum búin að vera sækja um seinustu 18 mánuðina....samþykktum það ánægð með að vera komin með íbúð en samt með tárin í augunum yfir því að vera að fara að flytja út úr okkar fabjúlos íbúð í Frederiksberg Svo fengum við íbúðarsamninginn sendan þá er þetta minni íbúð en við samþykktum og eitthvað vez. Þannig að við verðum að redda þessu áður en við förum til útlanda og vona að það sé eitthvað hægt að tala þessa pappakassa til! Við erum samt ekkert að fara að lenda á götunni...held að við getum reynt að vera hérna þangað til að við reddum einhverju öðru.
En Búlgaría í næstu viku og svo daginn eftir að við komum heim ætlar Sindri lille bró að koma í heimsókn til okkar og vera í eina viku...örugglega fyrsti túristinn sem ekki festist á barnum eða í búðum...svo að það verður alveg frábært!
En er farin að reyna að pakka meira og taka erfiðar/leiðinlegar ákvarðanir....
Hæjdo Rejse-aggan
Две Ден за България! Довиждане!!! Бира Мерcи...Наздраве!
Þið getið ekki ímindað ykkur hvað þetta tók langan tíma...hahaha....það sem að maður getur ekki dundað sér við!!!
Fyrir ykkur sem skrópuðu eða sváfu í...búlgörsku tímum í skóla þá þýðir þetta: Búlgaría eftir 2 daga....Farvel! og Bjór takk....skál!
Við skötuhjú vöknuðum snemma á laugardeginum (um 10) með enga gesti....en íbúðin okkar er búin að vera eins og opin lestarstöð fyrir festivalsgesti bæði frá Roskilde og Belgíu...bara gaman! Þetta var þvottadagurinn mikli þar sem að maður var kominn í "bara í neyð" fötin. Um 6 komum við heim alveg búin á því og skellum kvöldmatnum í ofninn og erum að spá í hvað við gætum gert um kvöldið...þannig að það var byrjað að hringja í þá sem að áttu ekki að vera á Keldunni. Sama hvert við hringdum þá komumst við að því að allir Íslendingar í Köben og víðar væru staddir á sama stað...þar sem að við ætluðum ekki að vera og þar sem að vel plönuð rigning og drulla var (að minni hálfu)! Áður en kvöldmaturinn var kominn út úr ofninum vorum við búin að pakka öllu því sem að huxanlega gæti komið okkur að notum á festivalinu: 2 regnjakkar, 4 plastpokar, límband, 2 svefnpokar, sokkar og myndavél. (Við áttum ekki tjald, regnbuxur eða stígvél....seinni tíma vandamál ekki satt!) Það var uppselt á hátíðina svo að það var planið að kaupa miðana á lestarstöðinni...miðinn átti að kosta held ég 1500 kall. Við sáum 2 rússalega gaura sem voru að reyna að selja miða og við náðum að prútta 2 miða niðrí 600 kall...nokkuð góður díll. Það er alltaf möguleiki á því að þeir eru falsaðir svo að ég spurði hvort að miðarnir væru ekki pottþéttir...annar gaurinn rífur upp passann sinn og segir mér að taka mynd af sér með því...gat ekki látið þetta heimskulega móment fram hjá mér fara svo að það voru teknar nokkrar góðar myndir...hinn rússa gaurinn varð eitthvað abbó yfir allri þessari athygli sem að hinn fékk svo að hann grábað mig líka að taka mynd af sér með sínum passa....bara fyndið! Við tökum strætóinn uppá svæði og náðum í festivals bandið með gjörsamlega marg krosslagða putta um að þeir væru í lagi. Einhversstaðar í millitíðinni var ég búin að fá stígvél sem voru ca.4 númerum of stór á mig...svo að ég var alltaf að "týna" þeim í drullunni....hressandi. Við vorum samt búin að teipa okkur inn í 7/11 poka (eins og í gamla daga þegar að maður blotnaði í leikskóla :o) ) og Hjalti algjör hetja að vera í Adidas strigaskónum sínum allan tíman.... Þegar við komum inná svæðið var tilfinningin ólýsanleg...maður var kominn á sama stað og fyrir ári síðan...loftið fullt af pissi og lyktin af rotnandi mat var yfirþyrmandi...sama hvert við litum var allt fullt af drullu og pollum...og okkur var bött sama...bara hluti af stemmaranum! Við hentum draslinu í geymslu þegar The Who voru að spila og fórum svo í bjórinn. Þar sem að það voru nánast allir sem að týndu eða yfirbleyttu símana sína var ekki auðvelt að ná í þá sem að við þekktum þarna. Hittum Gyðu og einhverja vini hennar yfir Red Hot Chilli Peppers....þeir sökkuðu btw...en samt svaka stemmari hjá okkur. Svo var djammað videre og svo um 5 fórum við að spá í hvar við ættum að sofa um nóttina. Fengum að vita að það væri hægt að sofa inná einu tónleika sviðinu sem að okkur fannst frekar fyndið svo að auðvitað slógum við það á stundinni. Mættum á sviðið, skriðum ofaní svefnpokana og drulluna og sváfum eins og steinar þangað til að við vöknuðum ógeðslega mygluð daginn eftir við að það voru að byrja tónleikar og allt að fyllast að fólki. Við dúndrandi tónlist reyndum við að tjasla okkur saman og koma okkur aftur í gírinn. Eftir tannburstun og ógeðslega vont pasta var farið að sjá glamorglysbandið The Ark... Seinna um daginn djónaði Hallur okkur og hann hafði dregið pabba og bróður sinn með á Kelduna...bara töff. Eftir Arctic Monkeys sem voru geðveikir og Muse sem voru enn meira sjúkir....bestu tónleikar sem að ég hef farið á...var haldið heim á leið í sólinni.
Þrátt fyrir drullu, smá rigningu og blauta síma var frábært að skella sér á festivalið í þessa 2 daga og auðvitað er planið að fara aftur á næsta ári...
Þeir sem kláruðu að lesa....þið eruð hetjur!!!
Bið að heilsa í bili... Roskilde-Aggan
p.s. er búin að setja inn einhverjar myndir...verðið að tékka á þeim...!